Starfsmenn óskast í Skýjaborg - Framtíðarstarf í ræstingu og 50% staða matráðar tímabundið

Starfsmaður óskast í ræstingu

Laus er staða við ræstingar í leikskólanum Skýjaborg, Hvalfjarðarsveit.  Um er að ræða ræstingarstarf utan dagvinnutíma alla virka daga, 3,05 klst. á dag, vinnan fer fram á tímabilinu 16:30 – 20:00 eða eftir samkomulagi. 

  • Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg. 
  • Hreinlæti í fyrirrúmi. 
  • Sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Starfið hentar báðum kynjum.

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. 

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Eyrúnu Jónu Reynisdóttur, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfanginu eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is

Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 24. júní næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is. Ráðið er frá ágúst 2019. 

 

Starfsmaður óskast tímabundið í 50% stöðu matráðar

Auglýst er eftir starfsmanni í 50% starf matráðar frá 6. ágúst til loka september. Vinnutíminn verður frá 12:10-15:40 alla daga vikunnar. Vinnan snýst um frágang, uppvask, þrif og undirbúning fyrir nónhressingu. 

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. 

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Eyrúnu Jónu Reynisdóttur, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfanginu eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is.