Sveitaferð á Bjarteyjarsand

Á föstudaginn fórum við í sveitaferð inn að Bjarteyjarsandi þar sem við heimsóttum lömbin, kindurnar, hestana, kanínurnar, geiturnar, kalkúnana, hænurnar og hundana. Veðrið lék við okkur þennan dag og dvöldum við lengi í fjörunni og á leikvellinum. Enduðum síðan á því að grilla pylsur. Frábær dagur í alla staði. Myndir komnar á myndasafnið.