Útskrift leikskóla 2015

Á föstudaginn var útskriftarathöfn í leikskólanum fyrir börnin sem hefja grunnskólagöngu sína í haust. Við athöfnina fengu þau afhentar ferilmöppur sínar sem þau hafa safnað minningum og verkum frá því þau hófu leikskólagöngu og fengu síðan að gjöf birkitré frá leikskólanum. Eftir athöfnina buðu foreldrar upp á veitingar. Til hamingju börn, foreldrar og fjölskyldur með þennan merka áfanga.