Ævar Þór - upplestur

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu fengum við Ævar Þór til að lesa upp fyrir nemendur skólans s.l. mánudag. Upplesturinn fór fram á TEAMS og allir í sínum hólfum hlustuðu af athygli á brot úr sögunni "Þín eigin undirdjúp". Sögubúturinn var æsispennandi og ekki annað að sjá en nemendur skólans hefðu gaman af og þá sérstaklega að fá að velja um 2 - 3 möguleika fyrir áframhaldandi söguframvindu. Stundum fór illa m.a. lentu söguhetjurnar í því að vera étnar af hákarli. Við þökkum Ævari fyrir skemmtilegan upplestur og spennandi sögu.