Afleysing í stöðu matráðar í leikskólanum skýjaborg í ágúst n.k.

Afleysing í stöðu matráðar v/sumarleyfis í 100% stöðu við leikskólann Skýjaborg frá 5.ágúst til 31.ágúst 2020. Við leitum að einstakling sem hefur brennandi áhuga á að elda hollan, góðan og næringarríkan mat í samræmi við Manneldismarkmið Lýðheilsustöðvar. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af starfi í mötuneyti æskileg.

Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Guðmunda Júlía Valdimarsdóttir, í síma 433 8530 / 8684298 og á netfanginu gudmunda@hvalfjardarsveit.is