Afmælistónleikar í Heiðarskóla

Það var virkilega gaman á afmælistónleikum Tónlistarskólans á Akranesi sem haldnir voru í Heiðarskóla í gærmorgun. Tónleikarnir hófust á afmælissöng þar sem tónleikagestir risu úr sætum og sungu skólanum til heiðurs á þessum tímamótum en eins og flestir vita eru 60 ár síðan Tónlistarskólinn var stofnaður. Fjölmargir nemendur í tónlistarnámi spiluðu fjölbreytt og skemmtileg lög. Í myndaalbúm eru komnar myndir frá tónleikunum.