Árshátíð Heiðarskóla 2014

Hæfileikaríkur hópur nemenda úr 6. – 10. bekk  fór á kostum í leik, söng og dansi í söngleiknum „Rokkabillí“ sem sýndur  var á Árshátíð Heiðarskóla í gær. Nemendur frá Tónlistarskóla Akraness fluttu einnig nokkur tónlistaratriði. Veisluhlaðborðið svignaði undan girnilegum veitingum í boði foreldra og ekki var annað að sjá en fólk skemmti sér vel. Krakkarnir stóðu sig gríðarlega vel – við erum mjög stolt af þeim. Inn á myndasafnið eru komnar myndir. Þeir sem áttu ekki heimangengt í gær geta séð söngleikinn á slóðinni  http://youtu.be/8lgJZi9CxgA