Árshátíð Heiðarskóla 2022

Árshátíð Heiðarskóla 2022 verður haldin fimmtudaginn 7. apríl.

Sýningin hefst stundvíslega klukkan 17:15.

Nemendur í 3. - 7. bekk sjá um skemmtiatriði. 

Kaffi og árshátíðarhlaðborð í boði foreldra í 7. – 10. bekk og sjoppan verður opin.

Línuhappadrætti – 200 kr. línan.

Miðaverð 1500 kr. fyrir 16 ára og eldri. Allur ágóði af sýningunni rennur í ferðasjóð Nemendafélagsins. Enginn posi á staðnum. Veitingar innifaldar í verði.

 Allir hjartanlega velkomnir. Starfsfólk og nemendur vonast til að sjá sem flesta!