- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á Árshátíð Heiðarskóla sem haldin var síðdegis í dag.
Hátíðin hófst á vinningsatriði hæfileikakeppninnar þar sem þær Þórdís Ásta og Katrín Líf spiluðu lagið Over the Rain Bow á flygil.
Nemendur í 3. og 4. bekk sungu Geimlagið en þeir hafa undanfarið verið að læra um sólkerfið og kafað ofan í leyndardóma alheimsins.
Nemendur á miðstigi fluttu leikþáttinn Skólaskaup þar sem góðlátlegt grín var gert að starfsfólki skólans og allt samið af nemendunum sjálfum.
Eftir sýningu var árshátíðarhlaðborðið á sýnum stað í boði foreldra í 6. – 10. bekk.
Að lokum var dregið út í spilahappdrætti.
Fyrir hönd Nemendafélags Heiðarskóla þökkum við öllum nemendum fyrir þátttökuna, gestum fyrir komuna og stuðninginn en allur ágóði sýningarinnar rennur í ferðasjóð Nemendafélagsins.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |