Bangsa- og náttfatadagur

Í dag er alþjóðlegi bangsadagurinn og því voru bangsar sérstaklega velkomnir með í leikskólann í dag. Að gamni höfðum við einnig náttfatadag. Mikil gleði var hjá börnunum og mættu bangsar af öllum stærðum og gerðum í leikskólann og börn í alls kyns náttfötum. Leikur myndaðist í kringum bangsana og var þeim einnig boðið með í afmælissamveru sem haldin er mánaðarlega fyrir afmælisbörn mánaðarins.