Baráttudagur gegn einelti

Í dag er baráttudagur gegn einelti. Í tilefni dagsins var tekin hjartalaga hópmynd af flestum nemendum skólans. Auk þess skrifaði hver og einn nemandi og starfsmaður fallega hvatningu á hjartamiða um góð samskipti o.fl. Miðarnir voru síðan hengdir upp á vegg og hafa í dag vakið mikla athygli enda um mjög góðar ráðleggingar að ræða.