Dagur íslenskrar tónlistar

Börn og starfsfólk kom saman á Regnboganum kl. 11:05 á þjóðarsamsöng v. Dags íslenskrar tónlistar. Hlustað var á lögin, þeir sungu sem kunnu textana og við lokalagið, Gefðu allt sem þú átt, var einnig dansað. 

Eins og segir í auglýsingu um þjóðarsamsöngin, þá er magnaður sameiningarmáttur í því að syngja saman. Textar laganna í ár vekja okkur til umhugsunar, umvefja okkur og hvetja til dáða.