Dagur stærðfræðinnar á yngsta stigi

Í dag gerðum við stærðfræði hátt undir höfði í tilefni af degi stærðfræðinnar sem er á morgun. Boðið var upp á stærðfræðistöðvar fyrir 1. -3. bekk þar sem hægt var að læra að búa til gogg, spila ýmis stærðfræðispil, raða tölustöfum og búa til mynstur. Skemmtilegar myndir eru í myndasafni.