- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Á föstudaginn var Dagur umhverfisins haldinn í Heiðarskóla. Dagurinn hófst á lítilli umhverfisráðstefnu þar sem nemendur í umhverfisnefnd kynntu umhverfissáttmála skólans og staðfestu hann með fingrafari. Sigurlaug Arnardóttir frá Landvernd flutti stutt erindi um þemu skólaársins, vistheimt og átthaga.
Að lokinni ráðstefnu og morgunmat héldu nemendur og starfsfólk út og tíndu rusl. Í hádeginu var boðið upp á ljúffenga grillpinna og maísstöngla á skólalóðinni. Dagurinn var í alla staði velheppnaður þar sem nemendur og starfsmenn nutu náttúrunnar og áttu góða samveru í leikjum og upplifun.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |