Danssýning

Nemendur skólans hafa undanfarnar vikur verið í danskennslu hjá Írisi Ósk Einarsdóttur, danskennara. Það er mál manna að krakkarnir hafi almennt staðið sig mjög vel. Mánudaginn 14. mars klukkan 11:10 er síðasti danstíminn og þá verður sýning í matsal skólans. Foreldrar, afar, ömmur, frændur og frænkur og aðrir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir.