Danssýning í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

Undanfarnar vikur hefur Jóhanna Árnadóttir danskennari verið með dansnámskeið í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.  Fimmtudaginn 19. mars er síðasti dagur kennslunnar og þá gefst foreldrum og öðrum velunnurum skólans tækifæri til að sjá afraksturinn á danssýningu. Sýningin hefst klukkan 9:00 í Skýjaborg og klukkan 10:30 í Heiðarskóla. Allir hjartanlega velkomnir.