- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í nýliðinni viku buðu nemendur á unglingastigi upp á svokallað fræðslusmakk í klukkustund eða svo.
Öllum nemendum skólans, starfsmönnum og foreldrum barna í unglingadeild var boðið að koma og kynna sér þemaverkefni um loftlagsmál þar sem skoðað var ofan í kjölinn hvernig staðan er og hvað við getum gert til að fara betur með jörðina t.d. varðandi bíla, fataframleiðslu, regnskóga, notkun á gervigreind, lofthjúpinn, ósonlagið, kóralrif o.fl.
Nemendur á unglingastigi stóðu fyrir svörum og útskýrðu vel og greinilega hvernig staðan er og hvað við getum gert til að fara betur með jörðina okkar.
Til hamingju unglingar með frábært fræðslusmakk sem var vel sótt.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |