Framlengdur umsóknarfrestur um lausar stöður í Heiðarskóla

Framlengdur umsóknarfrestur um lausar stöður í Heiðarskóla til og með 12. ágúst.

Eftirfarandi stöður skólaliða eru lausar til umsóknar:

  • 75% staða skólaliða, vinnutími 8:00 – 14:00
  • 91% staða skólaliða, vinnutími  8:00 – 15:17

Um framtíðarstörf er að ræða frá og með 16.08.2021. Skólaliðar sjá um ræstingu og vinna í samstarfi við umsjónarteymi með börnum. Við leitum að einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum og í ræstingu er æskileg. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

Einnig eru tvær stöður stuðningsfulltrúa í hlutastörfum lausar til umsóknar

Um tímabundnar ráðningar stuðningsfulltrúa er að ræða frá 16.08.2021 – 08.06.2022. Störfin fela í sér stuðning innan námshópa í samstarfi við umsjónarteymi hópa. Við leitum að einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum er æskileg. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍS og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um störfin má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 896 8158 eða senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Umsókn ásamt ferilskrá má senda á sama netfang. Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst 2021. Öllum umsóknum verður svarað.