Fullveldishátíð Heiðarskóla 2026

Nemendur hafa æft af kappi síðustu vikur og dagskráin er fjölbreytt:

Nemendur á elsta stigi flytja ávarp og eru kynnar hátíðarinnar.
Nemendur í 2. bekk sýna trommuatriði.
Nemendur í 1. og 2. bekk syngja „Adam átti syni sjö“.
Nemendur í 1. og 2. bekk syngja lagið „Jörð“ úr Þúsaldarljóðunum ásamt elstu börnunum í Skýjaborg.
Nemendur í 8.–10. bekk sýna söngleikinn Grease.

Boðið verður upp á vöfflur, heitt súkkulaði og kaffi og sjoppan verður opin.

Miðaverð er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri og veitingar eru innifaldar. Allur ágóði af sýningunni rennur í ferðasjóð Nemendafélagsins. Athugið að enginn posi er á staðnum, svo gott er að hafa reiðufé meðferðis. Hægt verður að millifæra inn á reikning nemendafélagsins.

Öll hjartanlega velkomin!