- Fréttir
 - Skólastarfið
 - Starfsfólk
 - Heiðarskóli
 - Skýjaborg
 - Foreldrar
 - Menntastefna
 
Tónlist og leikgleði einkenndu Fullveldishátíð Heiðarskóla sem haldin var í gær. Börnin stóðu sig einstaklega vel og greinilega fullt af hæfileikaríku fólki hér í skólanum. Ekki var annað að heyra en að gestirnir hefðu notið sýningarinnar og ekki síður veitinganna sem 9. bekkur sá um. Tónlistarforskólinn flutti tónlistaratriði og sönghópurinn Spangólandi úlfar fóru á kostum. Leikritið Rauðhöfðaskemmtun var flutt af elstu börnum leikskólans og nemendum í 1. - 5. bekk. Leikritið er unnið upp úr þjóðsögunni um Rauðhöfða en sú saga gerist að hluta til í Hvalfirði og ýmis örnefni er hægt að tengja við söguna. Inn á myndasafnið eru komnar myndir.
| 
 Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is | 
 Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |