Gjöf frá foreldrafélaginu

Þar sem foreldrafélagið gat ekki haldið vorhátíð síðastliðið vor var ákveðið að nýta peninginn sem átti að fara í vorhátíðina í eitthvað fyrir börnin. Leikskólinn fékk að velja efnivið að andvirði 100.00,- og fékk starfsfólk deildanna það verkefni að finna efnivið. 

Keypt var sullukar og dót með því, leirdót, ýmisskonar spil, skynjarmottur og glas og fl. Hluti af gjöfinni kom núna í vikunni og hluti kemur eftir rúman mánuð. Við sendum foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir þessa rausnalegu gjöf. Þið hugsið aldeilis í lausnum. 

Á meðfylgjandi mynd má sjá aðra deildina taka við því dóti sem komið er fyrir þá deild.