Góður árangur í upplestrarkeppni

Nemendur Heiðarskóla stóðu sig einstaklega vel í Stóru upplestrarkeppni samstarfsskólanna sem fór fram í dag í Grunnskólanum í Borgarnesi. Dómarar voru ekki öfundsverðir að þurfa að dæma jafna keppendur en Ísabella Rós landaði 2. sæti.

Bæði Ísabella Rós og Sara Margrét sýndu öryggi og vandaðan upplestur og voru skólanum til mikils sóma. Til hamingju með frábæran árangur!