- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í gær fegnum við góðan gest frá Landvernd í heimsókn. Fulltrúi Landverndar hún Ósk gerði úttekt á grænfánavinnu í Heiðarskóla sl. tvö ár. Eftir úttekt afhenti Ósk Umhverfisnefnd skólans 9. grænfánann eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ósk sendi síðan endurgjöf til skólans sem lesa má hér:
„Vel gekk að vinna með þau þemu sem umhverfisnefnd valdi á tímabilinu. Það er frábært að sjá hvernig þemað hnattrænt réttlæti er nýtt til þess að auka þekkingu nemenda á ólíkri menningu, upplifun flóttamanna sem hingað koma og taka vel á móti umsækjendum um alþjóðlega vernd. Eins og fram kemur í skýrslunni og sást vel í úttektinni er unnið ötullega að umhverfismennt og umhverfismálum í skólanum á fjölbreyttan máta. Fjölmargt er orðið að föstum lið í skólastarfinu, má þar nefna útikennslu, matarvigtun, jól í skókassa, gróðursetning. Til fyrirmyndar er hvernig skólinn heldur upp á þá daga sem tileinkaðir eru náttúru og umhverfi. Nemendur í nefndinni hafa mikið vægi og greinilegt að margir kennarar ná að flétta umhverfismálin í sína kennslu og þannig gera Grænfánastarfið að heildarskólanálgun. Þið hafið náð þeim góða árangri að fá grænfánann áfhentan í 9. sinn. Innilega til hamingju með það.“
Fyrir áhugasama þá má lesa skýrslu skólans til Landverndar á slóðinni; Skýrsla Grænfánaverkefnis Heiðarskóla 2023-2025
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |