Gróðursetning og fleira

Í dag var gróðursetningardagur í Heiðarskóla, nemendur í 5. – 10. bekk gróðursettu rúmlega 70 trjáplöntur m.a. í Sigurðarlundi norðan við skólann með aðstoð Eyfa frá Hlíð. Gróðursetningin er þáttur í grænfánavinnu skólans.

Annars hefur maí verið viðburðarríkur eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Nú stendur t.d. yfir undirbúningur fyrir Survivor sem haldinn verður í Álfholtsskógi á fimmtudaginn. Nemendur á yngsta og miðstigi eru einnig að njóta á hjóladögum í góða veðrinu.