Hæfileikakeppni Heiðarskóla 2018

Hæfileikakeppni Heiðarskóla var haldin í lok febrúar. Margir tóku þátt og erum við þakklát fyrir það enda hæfileikaríkt fólk í Heiðarskóla. Fjölbreytt atriði voru á dagskrá og þökkum við öllum þátttakendum fyrir skemmtilega keppni. Dómnefndin hafði úr vöndu að ráða þegar kom að því að velja þrjú efstu sætin. Í þriðja sæti voru Fylkir og félagar úr 1. bekk ásamt Antoni í 2. bekk með söngatriði. Í öðru sæti voru þær Freyja Björk og Rakel Sunna með dansatriði og í fyrsta sæti var söngatriði þeirra Kristins, Guðrúnar og Fríðu í 9. bekk. Við óskum vinningshöfum kærlega til hamingju. Í myndaalbúm eru komnar myndir frá Hæfileikakeppninni.