- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í Heiðarskóla hefur skapast sú skemmtilega hefð að nemendur unglingadeildar hafa, ásamt kennurum sínum, gengið ýmis fjöll og firnindi að hausti. Í ár var gengið yfir Síldarmannagötur úr Hvalfirði og yfir að Fitjum í Skorradal fimmtudaginn 1. september og gist í skátaskálanum í Skorradal. Óhætt er að segja að gangan sjálf hafi gengið vel og að nemendur voru einkar jákvæðir gagnvart ferðinni. Gangan tók á bilinu 4-5 klukkustundir en veðrið var með afbrigðum gott. Frábær byrjun á frábæru skólaári. Í myndaalbúm eru komnar nokkrar myndir.
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |