Heiðarskóli tók þátt í Treyjudeginum 4. september

Öll í sama liði
Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta sinn á Íslandi í ár. Að deginum stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein og er markmiðið einfalt en mikilvægt: Að einstaklingar, vinnustaðir, skólar og íþróttafélög klæðist sinni uppáhaldstreyju og sýni þannig stuðning við börn sem glíma við krabbamein.

Treyjudagurinn var fyrst haldinn í Englandi árið 2013. Verkefnið í þeirri mynd sem það hefur tekið á sig í dag byggir á danskri fyrirmynd frá árinu 2019.

Treyjurnar geta tilheyrt ólíkum liðum, íþróttagreinum og löndum. Á þessum degi skiptir það þó engu máli með hvaða liði fólk heldur. Skilaboðin eru skýr: Á Treyjudeginum erum við öll í sama liði.

Á Treyjudeginum erum við öll í sama liði fyrir börn með krabbamein og sýnum þeim og fjölskyldum þeirra stuðning. Með þátttökunni sýndum við börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra stuðning og samstöðu. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt og mættu í treyju í skólann.