Hjólahjálmar

Í dag fengu allir nemendur í 1. bekk hjólahjálma að gjöf frá Kiwanis. Þau Halldór frá Kiwanis og Karen Lind ökukennari komu og afhentu nemendum okkar í 1. bekk reiðhjólahjálmana. Karen var einnig með fræðslu fyrir börnin um mikilvægi þess að nota hjálminn alltaf þegar maður er á hjóli, línuskautum, hjólabretti eða öðrum hjólatækjum. Hún sýndi börnunum einnig hvernig á að stilla hjálminn en það er mjög mikilvægt að hjálmurinn sitji rétt á höfðinu. Karen sýndi þeim svo tilraun með eggi til að sýna þeim í raun gagnsemi þess að nota ávallt hjálm. Á meðfylgjandi mynd er 1. bekkurinn með hjálmana ásamt gestunum okkar góðu. Við þökkum þeim kærlega fyrir góða gjöf og mikilvæga fræðslu.