Húsdýrin í 1. og 2. bekk

Á síðustu vikum hafa nemendur í 1. og 2. bekk unnið í byrjendalæsi með bókina "Blesa og leitin að grænna grasi". Í lok verkefnisins unnu nemendurnir samvinnuverkefni  um húsdýrin og sköpuðu sinn eigin heim þar sem húsdýr fengu alls kyns hólf og aðhlynningu í skemmtilegu myndverki eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.