Íþróttadagur Heiðarskóla

Í dag fór fram hinn árlegi íþróttadagur Heiðarskóla. Keppt var í alls kyns greinum og nemendur fengu að spreyta sig eins og þeir vildu og á sínum forsendum. Hver og einn nemandi safnaði stigum bæði fyrir sig og bekkinn sinn.

Úrslit voru kynnt í lok dags og stigahæsti nemandinn í hverjum bekk var valinn. Einnig var kynnt um stigahæsta nemanda skólans og stigahæsta bekkinn.

Að þessu sinni var það 9. bekkur sem var stigahæsti bekkurinn og Arnþór Mikael Heimisson var stigahæsti nemandi skólans.

Veðrið lék við okkur og ekki annað að sjá en allir væru að njóta.

Á meðfylgjandi mynd má sjá stigahæsta nemanda hvers bekkjar.