Jólabingó Foreldrafélags Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

Á þriðjudaginn hélt Foreldrafélag Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar jólabingó í Heiðarskóla. Mætingin fór fram úr björtustu vonum og börn og fullorðnir áttu saman notalega stund. Við þökkum Foreldrafélaginu kærlega fyrir skemmtilega samverustund.