Jólakveðja frá Heiðarskóla

Við óskum foreldrum, nemendum skólans og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir samstarfið á árinu. 

Skólastarf hefst aftur á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá. Þá hefst jafnframt skólaakstur. Starfsfólk mætir til starfa þriðjudaginn 3. janúar á skipulagsdag.