Jólakveðja frá Heiðarskóla

Starfsfólk Heiðarskóla óskar foreldrum, börnum og velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kærri þökk fyrir samstarfið á líðandi ári.

Nemendur og starfsmenn eru nú komnir í kærkomið jólaleyfi. Skólastarf á nýju ári hefst aftur á skipulagsdegi mánudaginn 5. janúar og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. janúar. Þá hefst jafnframt skólaakstur og Frístund opnar eftir jólaleyfi.