Kennara vantar til starfa á næsta skólári

Vegna forfalla vantar okkur kennara til starfa skólaárið 2017 - 2018. Um tímabundna ráðningu er að ræða í 100 % starf í teymiskennslu á unglingastigi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Heiðarskóli er grunnskólasvið í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Nemendur Heiðarskóla eru rúmlega 90 og kennt er í þremur námshópum; 1. – 4. bekk, 5. – 7. bekk og 8. – 10. bekk. Skólinn vinnur með uppeldi til ábyrgðar í samskiptum og spjaldtölvur eru nýttar í námi á öllum aldursstigum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri Heiðarskóla, Sigríður Lára Guðmundsdóttir, í síma 433 8521 eða 899 5156. Einnig hægt að senda fyrirspurn um starfið á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is