- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Á föstudaginn 27. febrúar buðum við í konudagskaffi í leikskólanum. Boðið var upp á kaffi, brauð, kex, salöt, ýmislegt álegg og vínber. Börnin höfðu teiknað fallegar myndir af mömmum sínum og svarað nokkrum spurningum um þær. Myndirnar voru hengdar upp til sýnis og vöktu gleði.
Sama dag glitruðum við með einstökum börnum. En Einstök börn, landssamtök barna með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni, hvatti þjóðina til að GLITRA með sér þennan dag í tilefni af alþjóðadegi sjaldgæfra sjúkdóma.
Sumir nutu þess að setjast niður og spjalla saman yfir kaffibolla og brauðsneið, á meðan aðrir fóru í leik með börnunum. Það myndaðist notaleg stemning í leikskólanum og gaman að sjá samveruna. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |