Kvenfélagið Lilja færir Heiðarborg gjöf

Í gærkvöldi gaf Kvenfélagið Lilja Heiðarborg hjartastuðtæki ásamt veggskáp og blástursmaska. Þar sem mínútur skipta máli við endurlífgun þarf ekki að tíunda hverstu þakklát við erum fyrir þetta mikilvæga öryggistæki í íþróttamiðstöðina okkar í sveitinni. Kærar þakkir fyrir okkur Kvenfélagið Lilja - þið gerið mikið fyrir mannlíf og öryggi í Hvalfjarðarsveit.