Kynning elstu barna á skólasamstarfi vetrarins

Í vetur hafa börnin í elsta hóp rannsakað Heiðarskóla í gegnum könnunaraðferðina. Nú í síðustu viku voru þau með kynningu fyrir foreldra, starfsmenn og börn á Regnboganum á því sem þeim fannst mikilvægast/merkilegast í skólasamstarfinu. Áhugavert var að sjá að þeim þótti ólíkir hlutir mikilvægir og því var kynningin mjög fjölbreytt. Börnin stóðu sig eins og hetjur í að koma fram og segja frá.