- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar auglýsir eftir sérkennara sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra. Um er að ræða afleysingastöðu fram að áramótum með hugsanlegri framlengingu. Fjóra daga vikunnar vinnur viðkomandi sem stoðþjónustuaðili á yngsta stigi í Heiðarskóla og einn dag í Skýjaborg. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Menntunar og hæfniskröfur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða Eyrún Jóna Reynisdóttir leikskólastjóri í síma 433 8530. Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is eða eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is
Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hentar öllum kynjum.
Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja allt að 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |