Laus staða skólaliða í Heiðarskóla

Heiðarskóli auglýsir eftir starfmanni til að vinna með börnum í tómstunda- og frístundastarfi. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem er tilbúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk. Um er að ræða 50% stöðu og vinnutími er frá kl. 12:45 – 16:45. Um tímabundna ráðningu er að ræða frá 16. ágúst 2023 til 5. júní 2024.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af tómstunda- og frístundastarfi með börnum er æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst n.k. og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.