- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Eftirfarandi stöður skólaliða eru lausar til umsóknar:
Um framtíðarstörf er að ræða frá og með 16.08.2021. Skólaliðar sjá um ræstingu og vinna í samstarfi við umsjónarteymi með börnum. Við leitum að einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum og í ræstingu er æskileg. Störfin henta jafnt konum sem körlum.
Einnig eru tvær stöður stuðningsfulltrúa í hlutastörfum lausar til umsóknar
Um tímabundnar ráðningar stuðningsfulltrúa er að ræða frá 16.08.2021 – 08.06.2022. Störfin fela í sér stuðning innan námshópa í samstarfi við umsjónarteymi hópa. Við leitum að einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum er æskileg. Störfin henta jafnt konum sem körlum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍS og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 896 8158 eða senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Umsókn ásamt ferilskrá má senda á sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2021. Öllum umsóknum verður svarað.
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |