Lausar stöður kennara við Heiðarskóla skólaárið 2022 - 2023

Laus störf kennara við Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar fyrir skólaárið 2022-2023

Skólinn er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.  

Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum sem eru tilbúnir til að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.  

Bæði er um að ræða fastráðningastöðu sem og afleysingu á næsta skólaári sem hér segir:   

  • Umsjónarkennari - almenn kennsla í teymi á miðstigi.
  • Umsjónarkennari - almenn kennsla í teymi á yngsta stigi. 
  • List- og verkgreinakennarar, kennslugreinar heimilsfræði, textílmennt, myndmennt, smíði og tónmennt. 
  • Íþróttakennara

 Menntunar og hæfniskröfur  

  • Leyfisbréf til kennslu. 
  • Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.  
  • Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.  
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi. 
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.  
  • Góð íslenskukunnátta.  

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.