Lausar stöður leikskólakennara/leiðbeinanda og ræstitæknis við Skýjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi 46% staða 

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.

 

Ræstitæknir

Laus er staða ræstingar við leikskólann Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða um 38% starf (3,05 klst samkvæmt uppmælingu) og fer fram á tímabilinu 16:15 – 19:18 eða eftir samkomulagi, fimm daga vikunnar. 

  • Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg. 
  • Hreinlæti í fyrirrúmi. 
  • Sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Starfið hentar öllum kynjum. 
  • Um framtíðarstarf er að ræða.
  • Ráðið er í starfið frá lok ágúst.

 

Nánari upplýsingar um störfin veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 26. júlí nk. og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.