- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Heiðarskóli leitar að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru tilbúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk. Reynsla af störfum í skólaumhverfi er æskileg.
Heiðarskóli auglýsir eftirfarandi stöður skólaliða og stuðningsfulltrúa:
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri, í síma 896 8158. Störfin henta öllum kynjum. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá við Skarðsheiði og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan – virðing – metnaður – samvinna. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur.
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |