Nýr skólasálfræðingur til starfa

Elín Anna Baldursdóttir hefur verið ráðin sem nýr sálfræðingur við Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Hún mun hefja störf á morgun, 4. september. Við bjóðum Elínu Önnu velkomna til starfa og þökkum Birgi Guðmundssyni kærlega fyrir samstarfið síðustu árin. Elín Anna verður að öllu jöfnu með viðveru í Heiðarskóla annan hvorn fimmtudag og í Skýjaborg eftir þörfum.