- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í dag, 1. ágúst, tók Anna Margrét Tómasdóttir formlega við stöðu skólastjóra Heiðarskóla. Fyrr í sumar afhenti Sigríður Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi skólastjóri Önnu Margréti skólastjóralyklana eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Sigríður hóf störf við Heiðarskóla sem kennari árið 1992 og hefur því starfað við skólann í slétt 33 ár. Sigríður gegndi stöðu sviðsstjóra frá 2011 og stöðu skólastjóra frá og með hausti 2016.
Við þökkum Sigríði kærlega fyrir sitt framlag til Heiðarskóla og óskum Önnu Margréti innilega til hamingju með starfið og hlökkum til samstarfsins.
Skóladagatal næsta skólaárs má sjá hér: skoladagatal-heidarskola-2026-2027-2-samthykkt.pdf
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |