Á föstudag býður Heiðarskóli til opins húss þar sem nemendur kynna afrakstur vinnu sinnar í orkuþema skólans. Undanfarnar vikur hafa nemendur unnið fjölbreytt verkefni tengd orku, rannsakað ólíka orkugjafa og fræðst um mikilvægi orku í daglegu lífi og samfélaginu.
Dagskráin hefst með samsöng í sal skólans kl. 8:15 og stendur hann í um 20 mínútur. Að honum loknum gefst gestum kostur á að skoða verkefni nemenda, fræðast um vinnu þeirra og sjá þann fjölbreytta lærdóm og sköpunarkraft sem einkennt hefur þemavinnuna.
Kaffi verður á könnunni og eru allir velkomnir að heimsækja skólann, njóta samverunnar og kynna sér það góða starf sem fram fer í Heiðarskóla.
Við hlökkum til að taka á móti gestum og sýna afrakstur vinnu nemenda síðustu misseri.
Orkukveðja frá starfsmönnum og nemendum