- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Það var skemmtilegt í Heiðarskóla í dag. Þeir sem vildu mættu í búningum og gaman var að sjá hve margir höfðu gaman af því.
Eftir morgunmat var boðið upp á söngstöðvar en allir fengu að njóta á sinn hátt. Boðið var upp á vínber og nammi á fimm söngstöðvum.
Í hádegisverð borðuðu allir saman og í kjölfarið var haldin hæfileikakeppni Heiðarskóla.
Þvílíkir hæfileikar sem okkar nemendur hafa upp á að bjóða. Vitum að það að taka þátt er stór áskorun og ekki fyrir alla en þvílíkir hæfileikar sem okkar nemendur sýndu í dag. Að okkar mati eru allir þátttakendur sigurvegarar. Takk fyrir þátttökuna.
Dómnefndin hafði úr vöndu að ráða þegar þurfti að velja sigurvegara í 1., 2. og 3. sæti. En á meðfylgjandi mynd má sjá nánast alla þá sem lentu í 1. – 3. sæti og í myndasafni eru myndir frá deginum.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |