Rafmagnslaus dagur

Í síðustu viku var rafmagnslaus dagur hjá okkur. Þann dag reynum við að takmarka eins og við getum notkun rafmagns. Við höfum ljósin slökkt og fáum mat sem er ekki eldaður í ofni. Börnum var boðið að koma með vasaljós þar sem ansi dimmt er úti langt fram eftir morgni þessa dagana. Mikil gleði var í vasaljósaleik að morgni. Morgunmaturinn var borðaður við kertaljós sem bjó til kósý stemningu.