- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í dag fóru 37 nemendur og starfsfólk af miðstigi Heiðarskóla í eftirminnilega vorferð sem nefnist „Sjóferðin um sundin blá“. Faxaflóahafnir buðu hópnum upp á vandaða fræðslu um lífríki Faxaflóa og umhverfis. Veðrið lék við hópinn og voru leiðsögumennirnir frábærir við að miðla fróðleiknum þannig að hann næði til nemenda. Þetta var mikil upplifun fyrir alla viðstadda. Skólinn útvegaði rútu og kórónaði daginn með því að bjóða öllum upp á ljúffengan ís með dýfu á MosóGrill. Nemendur voru til fyrirmyndar í alla staði. Þau sýndu einstaka kurteisi og var frábært að sjá hve vel þau komu fram. Þessi dagur var sannkölluð ánægjustund og góð byrjun á sumrinu.
|
Heiðarskóli 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8525 Netfang: heidarskoli@hvalfjardarsveit.is |
Skýjaborg Innrimel 1 | 301 Akranes Aðalnúmer: 433 8530 Netfang: skyjaborg@hvalfjardarsveit.is |