Skíðaferð

Unglingastig skólans fór nýverið í vel heppnaða skíðaferð þar sem nemendur nutu dagsins vel í brekkunum. Stemningin var góð og margir prófuðu sig áfram á skíðum eða bretti. Sumir fóru vel út fyrir þægindarammann, prófuðu nýjar brekkur og sigruðu sjálfan sig. Það var gaman að sjá dugnaðinn og framfarirnar yfir daginn.